mánudagur, október 31, 2005

Oh...

Nú er ég reið. Og líka sár. Og leið. Þannig er mál með vexti að fjölskylda mín var farin að velta því fyrir sér hvort það væri ekki gaman að skreppa öll saman til Flórída yfir páskana. "Frábært" sagði ég "count me in". Ég var meira að segja bara farin að hlakka svolítið til. En onei, mamma var rétt í þessu að hringja í mig og spyrja mig hvort mér litist ekki rosalega vel á það að fara bara frá 23. des- 7. jan...Og missa af jólunum!?!?!?!!! Og áramótunum?!?!?! Er ekki í lagi?!?!?!?! Ég nenni engan veginn að vera föst með fjölskyldu minni og pálmatrjánum yfir öll jólin og áramótin en ef ég segist ekki vilja koma með þá verð ég skömmuð fyrir að vera fýlupúki. ARGH!!!

Nútímatækni er dásamleg. Ég er nýbúin að uppgvötva það að ég get notað ferðadvd-spilarann, sem ég keypti út í Skotlandi og hef mjög lítið notað, til þess að horfa á Friends þegar ég er í baði!!! Algjör snilld. Reyndar lengir þetta baðtíma minn úr einum kl.tíma í tvo en maður er aldrei of hreinn right?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home