mánudagur, nóvember 21, 2005

Klámfenginn póstur

Ég á ammli eftir 7 daga!!!!!

Fór á White Stripes í gær, það var gaman, samt ekki æði. Pabbi og systir mín komu með og vann pabbi sér þar með inn nokkur kúlstig til þess að vega upp á móti plebbabílnum. En mér er sama hvað fólk reynir að sannfæra mig, Jack White er ekki sexy! Nei ekki einu sinni í My Doorbell myndbandinu!

Á fimmtudaginn fór ég ásamt nokkrum samnemendum mínum á kaffihús. Ekki ýkja merkilegt nema fyrir þær sakir að allir þeir bloggarar sem þar voru staddir hafa nú bloggað um það á síðurnar sínar. Ég get ekki verið þekkt fyrir að vera minni bloggari en þau þannig að hér kemur það. Á fimmtudaginn var talað um:

*Klámmyndatitla
*Klámlögin
*Kynþokkafyllstu karlmenn í kvikmyndum
*Kynþokkaminnstu karla í kvikmyndum
*Threesome ungverska fokkersins með sænskum lesbíum
* Faux pas manninn

Hmm...svolítið einsleit umræðuefni sé ég núna, en þetta var allt í góðu gamni gert.

Ef einhver er með góða hugmynd um hvað ég á að gera á afmælinu mínu látið mig vita!

1 Comments:

At 8:11 e.h., Blogger Þura said...

Tótallí á sömu skoðun og þú um White stripes, góðir tónleikar en ekki geggjaðir.

Mér finnst Jack ekki heldur sexí. Kúl, en ekki sexí.

Þarf ekkert voðalega að tjá mig um klámið.

 

Skrifa ummæli

<< Home