laugardagur, desember 16, 2006

Jæja...bara 7 dagar í heimferð. Ég verð að játa að ég er orðin alveg hrikalega spennt, enda Ísland orðið að hinu fullkomna landi í hausnum á mér. Á Íslandi eru allir vinir manns. Á Íslandi er hægt að finna alllt sem mann langar í. Á Íslandi er ekkert vesen. Á Íslandi er alltaf partý. Á Íslandi...

En það er nóg að gerast í Edinborg þangað til. Ég er sem betur fer búin með öll jólainnkaup, fyrir utan Secret Santa gjöfina fyrir "Secret Santa Shenanigans" sem er í vinnunni á miðvikudaginn. Hvatt er til kaupa á klámi og öðrum sora en sem betur fer er það ekki skylda því ég dró yfirmann minn. Ég veit ekki alveg hversu þægilegt mér fyndist að gefa fullorðnum yfirmanni mínum, sem á von á barni á næstu vikum, klám í jólagjöf. En kannski er ég bara tepra. Ég er nokkuð viss um að ég fái eitthvað mörgæsatengt frá mínum secret santa, því samstarfsmenn mínir eru með mig og mörgæsir á heilanum og þreytast seint á því að segja sögur af fræknum sigrum mínum í bardögum við mörgæsirnar sem þeir halda að búi á Íslandi.

Ég er með brjálað hauskvef. Ekki í nefinu samt en það vellur endalaust útum augun á mér og eyrun. Það er ekki jafn skemmtilegt og það hljómar.

Sofa....Sé ykkur eftir sjö daga!

4 Comments:

At 12:38 f.h., Blogger Ofurrauðkan said...

ó mæ godd þú kemur á morgun!!!

 
At 1:37 f.h., Blogger Ofurrauðkan said...

hérna, ertu farin heim aftur?

 
At 1:27 e.h., Blogger Ofurrauðkan said...

hei beib, ég bloggaði persónulegu samtali okkar á msn. Vonandi verðuru ekki mikið reið. Múss múss, hér er snjór, kalt og ömurlegt! :)

 
At 12:21 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

air jordan
air jordan
golden goose
bape outlet
off white outlet
fear of god essentials
kd shoes
kyrie 6
goyard outlet
supreme new york

 

Skrifa ummæli

<< Home