laugardagur, febrúar 10, 2007

Við erum blair,við erum hvítir...tralla la

Borgin mín er full af bullum. Fullum bullum. Í dag er Skotland að keppa við Wales í rugby og leikurinn fer fram hér í Edinborg. Ég spái óeirðum hvernig sem fer.

Ég er auðvitað ekki svo ófáguð að ætla að horfa á leikinn með bjór í annarri og haggis í hinni. Onei, ég ætla í kokteilboð með íslensku mafíunni, í kjól og hælum með mojito í annarri og páfugl í hinni (eða eitthvað annað álíka fágað, ég á engan páfugl í alvörunni).

En af því að heimurinn hatar mig, allir eru á móti mér og ég á mest bágt í heiminum þá er ég að fara að vinna í fyrramálið og get því ekki verið fáguð mjög lengi. Aumingja, aumingja ég ;)

4 Comments:

At 12:14 f.h., Blogger Ededededed said...

úh!! ég ætla að bæta þér á bloggið mitt.

 
At 12:19 f.h., Blogger Herra Forseti said...

úúú hei sömuleiðis!

 
At 11:30 e.h., Blogger Ofurrauðkan said...

úúú eruð þið núna BFF?

 
At 11:31 e.h., Blogger Ofurrauðkan said...

vá þetta var WAYYY of biturt :)

 

Skrifa ummæli

<< Home