fimmtudagur, desember 08, 2005

Eymd og vesöld

Ég var að horfa á sjónvarpið í gær. Þar sá ég, á einhverjum 3-4 tímum, tvo barnaníðinga, táningsstelpu nauðgað, tvo menn skjóta sig í hausinn og lækna sem döðruðu yfir deyjandi sjúklingum sínum. Er heimurinn virkilega orðinn svona firrtur? Finnst okkur þetta virkilega vera skemmtun? Maður getur ekki annað en örvænt.

Fór í prufu í nýju vinnuna mína í kvöld á veitingastað hér í borg. Eina vandamálið var það að ég er búin að vera veik í þrjá daga. Þannig að ég var þarna hóstandi yfir viðskiptavinina, hnerrandi oní matinn og fékk þar að auki alveg heiftarlega í magann, þannig að mest allt kvöldið satt ég vælandi í keng á stól. Frábært first impression!!

Ég týndi svolitlu sem var mér mikilvægt. Andsk...!!!

Kudos til Más fyrir að sjá mér fyrir skemmtiefni svo ég þurfi ekki að hugsa um að skrifa kannski einhverjar ritgerðir. Eða eitthvað....

8 Comments:

At 3:14 e.h., Blogger Herra Forseti said...

bara allar saman. Ógeð útum allt!

 
At 6:13 e.h., Blogger Ofurrauðkan said...

já heimur versnandi fer ljósið mitt, ættirðu ekki bara að hætta að horfa á sjónvarpið og lesa góða bók, eða jafnvel bókina góðu!
En hverju týndir þú sem var þér mikilvægt? (I want to go with kidney, but probably not)

 
At 9:47 e.h., Blogger Steini said...

Það ju vera allt í lagi að týna öðru nýranu ef hitt virkar ennþá. Sjálfur hef ég ekki fundið vinstra nýrað mitt svo vikum skiptir.

 
At 2:44 f.h., Blogger Herra Forseti said...

Uss! öll mín innyfli eru löngu rotin sökum ólifnaðar.

 
At 3:02 e.h., Blogger Ofurrauðkan said...

uuuuh dare I ask? MOAN ZONE??

 
At 7:59 f.h., Blogger Rauðhetta said...

Lára Klára trúir á stjörnumerki, hvert stjörnumerki er augljóslega með sitt moan zone og hennar er nýrun, spennandi ekki satt. auðvelt að fá hana til að stynja bara að sparka í nýrun...

 
At 12:01 e.h., Blogger Ofurrauðkan said...

Ef hún stynur af frygð þegar sparkað er í nýrun á henni er hún bara ósköp venjulegur masókisti.
moan zone my ass...incidentally that......

 
At 12:53 e.h., Blogger yanmaneee said...

pandora bracelet
cheap jordans
kd shoes
golden goose
yeezy shoes
yeezy shoes
off white clothing
kevin durant
curry 7
pandora

 

Skrifa ummæli

<< Home