miðvikudagur, janúar 11, 2006

Ok Ok!

Jæja, þá er fólkið mitt komið heim og ég því komin aftur upp á efri hæðina og á þar af leiðandi engra kosta völ nema að blogga. Sorry allir að ég skyldi ljúga...

Jól og áramót voru fín fyrir utan það að ég held mér hafi tekist að þróa með mér mjólkuróþol sem varð þess valdandi að ég eyddi jóladegi emjandi úr magaverk uppí sófa. En þar með missti ég einn dag úr áti þannig að HAH! þið verðið öll feitari en ég! Ég upplifði það líka hvernig er að vera karlmaðurinn í svona næntín fiftís hjónabandi. Helvíti fínt bara, ég fór í vinnuna á morgnana meðan konan var heima og þreif og eldaði. Ég tók nefnilega að mér heimilislausa rauðku yfir jólin.
Áramótunum eyddi ég svo með góðu fólki og ennþá betri rækjum þökk sé Guðna.

Eftir að hafa barist gegn því allt síðasta haust að vera kynnt sem bókmenntafræðinemi af móður minni verð ég víst að bíta í það súra epli þessa önn að vera jafn mikið í bókmenntafræðikúrsum og kvikmyndafræðikúrsum...andsk! mamma var nýfarin að læra þetta.

Talandi um mömmu mína. Konan sú ætlar í framboð fyrir sjálfstæðisflokkinn á Nesinu í næstu kosningum. Sem þýðir það að hún þarf að búa til kynningarbækling. Með fjölskyldumynd. Sem aftur þýðir það að myndum af mér lítandi út eins og vangeflingur, verður dreift um allt Seltjarnarnes....argh!!

8 Comments:

At 7:02 e.h., Blogger a.tinstar said...

hey áslaug, ég fíla þennan græna lit ógisslega vel. en af hverju ertu ekki með einhverja linka? i need to stretch my voyeurism-ism....alveg það sama...þú og hera..inn með linka svo ég geti spæjað. ætlaði að skamma hana en þá var kötturinn hennar látinn svo ég gat ekkert skammað.

 
At 10:50 f.h., Blogger Ofurrauðkan said...

Ha já Áslaug, afhverju ertu ekki með neina linka? afhverju? afhverju? hehehe...
og voru rækjurnar þá BETRI en fólkið?
sincerely
your exwife

 
At 6:58 e.h., Blogger Herra Forseti said...

Tinna: Ég er ekki með neina linka af því að ég er auli og kann ekki að setja þá inn. Hlæðu bara!

Auður: Já rækjurnar voru að vissu leiti betri en fólkið því fólkið gerði ekkert til að fylla svanga magann minn...æj ok bara bæði betra. Fæ ég ekki börnin um helgina?

 
At 12:42 e.h., Blogger Ofurrauðkan said...

börnin...? fuuuuck ég hef áreiðanlega gleymt þeim í Smáralindinni aftur...

 
At 3:38 e.h., Blogger Herra Forseti said...

Hátéemmell er bara fyrir homma og kerlingar!

 
At 12:25 e.h., Blogger Ofurrauðkan said...

það myndi útskýra svo mikið...

 
At 3:14 e.h., Blogger [Davíð K. Gestsson] said...

Hvaða bull. Hátéemmell-kunnátta er hámark gagnkynhneigðs kynþokka.

 
At 5:36 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

off white outlet
stephen curry shoes
off white
hermes handbags
russell westbrook shoes
golden goose outlet
bape outlet
jordan 13
cheap jordans
kyrie shoes

 

Skrifa ummæli

<< Home