laugardagur, desember 17, 2005

Ojæja

Eftirfarandi samtal átti ég í vinnunni í dag:

Ég: "Trallala trallalí..."
Hann: "Eh...hérna...þegar þú sópaðir gólfið í gær, fannstu þá nokkuð keðjusög?"
É: Hehehehe...ha?
H: Keðjusög?"
É: "Jú reyndar" *nær í keðjusögina* "gjössovel"
H: "Takk"

Absúrt.

Eitthvað annað svona drasl sem er að tröllríða bloggum núna. Ég er svo mikil hópsál að ég verð að vera með:


Póstaðu í kommentin og ...

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð/matur minnir mig á þig
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér eða þá eftirminnilegustu
5. Ég segi þér hvaða dýr þú minnir mig á

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt fyrir mér lengi um þig
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!


drasl...

14 Comments:

At 7:22 e.h., Blogger [Davíð K. Gestsson] said...

Ég vil líka vera memm.

 
At 11:20 e.h., Blogger Elín said...

Gerðu mig, gerðu mig...

 
At 10:18 f.h., Blogger Ofurrauðkan said...

Ég veit að kannski þekkirðu mig ekki alveg nógu vel til að geta sagt svona hluti um mig, en um að gera að prófa. Ég heiti Auður...

 
At 7:22 e.h., Blogger Herra Forseti said...

úff

Lára
1)Ert víst algjört freak of nature!
2)verð að segja Look good in leather með Cody.
3)Sushi
4)ANTM í fyrsta skiptið á Bergþórugötunni
5)Svolítið kjánalega gasellu
6)Af hverju ertu hætt að koma í bjór?


Davíð

1)Ég var ógeðslega fegin þegar ég fattaði að darbodettur er drykkjublogg. Sá gaur getur verið scary.
2)Eitthvað með Q-Tip
3)Franskar. Af því þú átt djúpsteikingapott.
4)Á Orðastað þar sem þú varst að taka myndir.
5)Lemúr
6)Af hverju viltu ekki segja mér leyndarmál?

Elín

1)Þú kannst ógeðslegustu rottusögu í heimi.
2)Trainspotting
3)Þynnkuhamborgari
4)hmmm, já eitthvað LFMH-party
5)Bangsa Bestaskinn
6)K.hús einhvern tíma?

Már

1)Ég lít alltaf fyrst á fætur karlmanna núna vegna skókenningar þinnar.
2)Vöðvastæltur með Landi og sonum. Sorry.
3)Bjór
4)Í tíma. Mér fannst undarlegt að svona karlmannlegur maður skildi vera í Hollywood söngleikjum.
5)Skógarbjörn
6) Finnst þér ekki ósanngjarnt að allir séu að fara að djamma á morgun þegar við erum að fara í próf á miðv.?

Ég veit ekkert hver þessi Auður er...

 
At 2:23 f.h., Blogger [Davíð K. Gestsson] said...

Ég á ekki bara djúpsteikingarpott heldur djúpsteikingapott-a.
Ég var búinn að segja þér að ég er mjög grunn og óáhugaverð manneskja sem þýðir að ég hef ekki mörg djúsí leyndarmál í pokahorninu.

 
At 12:27 e.h., Blogger Rauðhetta said...

ok ég veit ég er sein en jólin eru að skemma mig og ég vil vera með

 
At 1:51 e.h., Blogger Herra Forseti said...

Darbo, ég veit alveg að þú átt þér fullt af djúsí leyndarmálum en vilt bara ekki segja mér þau. Ég er mjög sár.

Inga

1)Þú veldur marblettum
2)AA xxx með peaches
3)Nammi
4)Þú að tala hátt inni í rauða herbergi í MH
5)Þvottabjörn
6)Ertu ekki komin í jólaskap?

Ég fattaði loksins hver þessi Auður er þannig að:

Auður
1)Eh...þú ert rauðhærð.
2)Baby it's cold outside
3)Sítrónudropar
4)vinkona Betu með strekkt tagl og eyeliner.
5)Jellybean. Ég veit að það er ekki dýr en þú minnir mig samt á það.
6)Urm...hvað er að frétta?

 
At 9:53 e.h., Blogger Rauðhetta said...

ÉG TALA BARASTA EINS OG MÚS

 
At 4:04 f.h., Blogger Herra Forseti said...

þá ertu mjög hávær mús Inga mín.

Sölvi
1)Er ennþá geðveikt þakklát fyrir hjálpina með gestalistann.
2)Turtles can fly, af því að þú varst sá eini sem sást hana á kvikmyndahátíðinni.
3)Snittur
4)Þegar þú varst að halda fyrirlestur um styttur á Orðastað
5)Gíraffa
6)Hvar ertu búinn að vera?

 
At 4:40 f.h., Blogger [Davíð K. Gestsson] said...

Nei maður. Ég sá Turtles Can Fly líka. Og hættu að stela dýrunum mínum! Fyrst var það þvottabjörninn og nú gírafinn?! Votts öpp viþ ðatt?

 
At 1:35 f.h., Blogger Herra Forseti said...

Ok Ok allir í heiminum sáu Turtles can fly. Ánægð?

Davíð. Það er af því að ég er með leyniaðgang að hugsunum þínum...oj! dóninn þinn!

 
At 12:36 f.h., Blogger [Davíð K. Gestsson] said...

Tepra geturðu verið.

 
At 1:27 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég Ég Ég !!!!

 
At 2:51 e.h., Blogger yanmaneee said...

yeezy
supreme
supreme clothing
yeezy 700
moncler jackets
ggdb
jordan 11
yeezy boost
off white shoes
supreme clothing

 

Skrifa ummæli

<< Home