þriðjudagur, september 20, 2005

Jæja,jæja...jæja

Af hverju er ég með samviskubit yfir því hvað ég blogga lítið? Það er ekki eins og bloggið mitt geti haft mikil áhrif á snúning jarðarkringlunnar eða gang heimsmálana. Ég vona alla vega ekki. Það væri nú ekki skemmtilegt ef hörmungarnar í New Orleans væru því að kenna að ég hef ekki staðið mig nógu vel í blogginu :o Mikið er það sorglegt annars. Mig hefur alltaf langaði til New Orleans. Finna köllun mína sem djasstónlistarmaður, ná mér í vampýru til að hanga með, bera á mér brjóstin á Mardi Gras og leggja síðan voodoo bölvun á alla sem mér er illa við...en nú er sá draumur úti, alla vega næstu árin. Leiðinlegt.
Það sem hins vegar er skemmtilegt er námið mitt. Ég er sem sagt byrjuð í Kvikmyndafræði við Háskóla Íslands. Þar fæ ég að horfa á bíómyndir og tala um fræga fólkið. Ég veit að ég gæti svo sme alveg gert það heima hjá mér líka en þarna fæ ég líka að þykjast vera djúpþennkjandi námsmaður í alvöru háskólanámi. Ekki slæmt. Ég náði meira að segja að sannfæra foreldra mína um það að það væri alveg nauðsynlegt námsins vegna að kaupa E sjónvarpsstöðina inná heimilið. Þvílíkt gósenland gagnlausra upplýsinga um tísku og smástirni Hollywood! Ég er því mjög glöð ung stúlka, afsakið, djúpþennkjandi háskólanemi um þessar mundir. Jei fyrir því!
Svo er ég líka á leið til London í næsta mánuði. Er reyndar soldið á báðum áttum með það því ég á akkúrat 600 kr. í heiminum núna en það hlýtur að reddast. Ég verð nefninlega að geta keypt mér skó í London. A girl needs her shoes!

Ég sór þess dýran eið í síðustu bloggfærslu að ég myndi hætta að drekka. Það hefur kannski ekki alveg gengið eftir, enda held ég að fáir hafi lagt nokkurn trúnað á þetta loforð mitt, en hins vegar hef ég minnkað djammið mjög mikið. Er orðin alltof gömul greinilega. Og peningalaus. Sem er kannski meira ástæðan....

En nú er kominn tími til að fara að vinna í þessum helvítis gestalista fyrir Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina sem verður haldin í lok september (partur af náminu) Og nei, ég get ekki sett ykkur inná hann :P